Monday, April 18, 2011

Hugmyndavinna

Las einhvers staðar að ný rannsókn gæfi til kynna að Labrador-hundar Séu farnir að geta greint ristilkrabbamein í mönnum með 90 prósent nákvæmni. Er ekki frá því að helvítis hundurinn hafi haft helst til mikinn áhuga fyrir rassinum á mér. Hann var konstant að hnosa af rassinum á mér og ég ekki frá því að hann hafi verið að reyna að láta mig vita af því að eitthvað væri að.

Tuesday, March 15, 2011

Það var og...

Greinilegt að ég á mér líf fyrir utan tölvuna. Liðið töluvert siðan ég byrjaði aftur að blogga og hef ekki skrifað staf. En það er nú í góðu og bendir til þess að ég hafi lítið að segja þessa dagana. En hver veit kannski breytist það.

Thursday, March 03, 2011

Back to the future!

Hef ákveðið að fara aftur í tímann og endurnýja kynni mín við bloggið. Hver veit kannski kem ég líka til með að auglýsa það þannig að einhver lesi þetta kannski. Ja, hver veit????